Loksins alvöru forysta í verkalýðsfélagi á Íslandi í langan tíma.

Textavarp RUV.

 VR vill helminga laun sjóðsstjóra. Stjórn VR hefur samþykkt að stjórn      Lífeyrissjóðs verzlunarmanna lækki laun framkvæmdastjórans, Guðmundar Þ.        Þórhallssonar, sem allra fyrst.  Guðmundur er með 41,5 milljónir í       árslaun, um 3,5 milljónir á mánuði. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR,     vill lækka launin um helming, svo þau séu ekki hærri en laun ráðherra. Ragnar lagði til við stjórn VR í ársbyrjun að sett yrði þak á laun framkvæmdastjóra   Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og þau lækkuð umtalsvert. Tillagan var         samþykkt. VR á helming fulltrúa  stjórnar lífeyrissjóðsins og væntir     Ragnar þess að þeir gæti hagsmuna VR í lífeyrissjóðnum og fylgi eftir          samþykktum stjórnar. 

Í forystu VR er loksins kominn einstaklingur sem RAUNVERULEGA vinnur fyrir
skjólstæðinga sína er ekki upptekinn af hleðslu undir eiginhagsmuni og
forréttindavörn. Einhversstaðar þarf viðsnúningurinn að byrja og Íslendingar
sem þjóð að snúa af braut sérhagsmuna og ofurlauna ef það á að vera hægt að byggja
það þjóðfélag sem við höfum sem þjóð lýst yfir að við viljum byggja.
Heilbrigðisþjónusta,menntun og almenn velsæld er markmiðið ef marka má
skoðanakannanir . Áfram VR lítil þúfa getur velt þugnu hlassi.





Bloggfærslur 17. júní 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband